Kreppan, vangaveltur.

http://www.ismennt.is/not/jonasg/jg/jg06/Kreppan%202008-.htm

Kreppan, vangaveltur.

Hvert er vandamálið.

Greina verkefnið.

Það var allt í lagi með atvinnuvegina, þeir gátu framleitt allt handa öllum.

Auðlindirnar dugðu, að vísu á að sýna meiri hagsýni.

Hægt var að kaupa Range Rower, bíla, steypu, timbur, matvæli, allt sem nöfnum tjáir að nefna.

Hvað er þá að?

Við einstaklingarnir höfðum það á tilfinningunni, að fjármálakerfið væri alltaf að græða.

Og af því að það græddi svona mikið, gat það greitt fyrir allt mögulegt og ómögulegt.

Það gat búið til peninga, það gerir það, handa öllum.

Og af því að við gátum gert allt, með guðs hjálp, eða með hjálp náttúrunnar, nafnið skiptir ekki máli,

en hugarfarið skiptir máli, þá var ástandið býsna gott.

Auðvitað áttum við ekki að búa til eldsneyti úr mat, við áttum að keyra bílana á rafmagni,

það er á öðrum orkugjöfum, og hætta þeirri heimsku, að moka korni að jafngildi 10 til 20

dagskömmtum af mannamat í dýrin, til að fá 1 dagskammt af kjöti.

Hvað kom þá í veg fyrir, að við gætum haldið áfram í gróskunni.

Við trúðum á verðbréfin.

Við sáum allt í einu að pappírarnir, verðbréfin höfðu ekkert á bak við sig.

Þar voru óteljandi smá svindl, stór svindl og kæruleysi.

Græðgi.

(Það var kallað syndir í fortíðinni, að gera rangt.)

(Ástúð og umhyggja hafði að vísu náð að eyða slæmum áhrifum, lengi vel.

Móðirin fæðir og klæðir barnið, hreinsar það, og allt gengur vel, það er ástúð og umhyggja,

hlúði að nútíðinni til sköpunar á framtíðinni.)

Um leið fór traustið á kerfinu. ((X*svindl +y*kæruleysi)/ástúð og umhyggju í veldi)

(Það var ekki bara eitt atriði, heldur óteljandi. Til dæmis eftir að Lehman brothers fór á hausinn,

þorði engin banki að lána öðrum, allir bankar hættu að lána, það er Prenta, já prenta peninga

Þá sögðum við. Við erum fátækir,

Við fórum að slást, kenndum hver öðrum um.

Hvað er til ráða.

Hverjum á að treysta, hver er traustsins verður. Þú veist það.

Hvað á að gera.

Það er að greiða þeim sem vantar vörur og þjónustu laun fyrir vinnu.

Það gerði fjármálakerfið áður með því að veita lán, (skrifaði bara tölurnar, þú sérð rétt)

út á framkvæmd, og tók vexti til sín af upphæðinni, og þegar lánið var greitt,

voru tölurnar afskrifaðar.

Jörðin okkar gat og getur fætt okkur alla. (Allt efni á að ganga í hring, nota aftur og aftur,

þá er ekkert rusl.)

Ekki má skilja neinn útundan.

Vandamálið er að við skiljum ekkert, erum snar rugluð. Nú á að staldra við og hugsa.

Við köllum það íhugun, bæn, orðin í bæninni skipta máli fyrir einstaklinginn.

Okkur var sagt að við ættum að halda hvíldardaginn heilagan. Hvað þýddi það,

áttum við í afslöppun, að leyfa náttúrunni, það er guði, að leika um sál og líkama,

að jafnaði einu sinni í viku, og gera rétt.

Það leiðrétti kompásinn í okkur.

Það getur gengið að við séum mörg ringluð, en þegar við erum flest orðin rugluð,

hver á þá að stýra.

Hver á að stýra skipinu?

Þú veist þetta betur en ég, eða erum við saman í súpunni.

Við verðum öll að fara í endurmenntun

Mig langar að vita hvað guð er að hugsa, annað eru smáatriði sagði, skrifaði Einstein

"I want to know God's thoughts; the rest are details."

•- Albert Einstein

•- Efni og orka er það sama,

•- Eða

  • - Birtingar myndin er sem efni eða orka

Allt efni er byggt upp af orku. Það er ekkert til, svo að við vitum,

sem er ekki byggt upp af orku.

Með öðrum orðum, það er ekkert til nema fyrir eða vegna orkunnar.

Og áður var okkur kennt,

Það er ekkert til nema fyrir Guð, hann er skapari alls.

Er það sem okkur var kennt að héti guð og væri á bak við allt,

krafturinn sem allt byggist á.

Nú er oft talað um sýndarveruleik í tölvunum.

Karlinn með skeggið, og móðirin, sem spila á orku píanóið, skapandi efnisheiminn,

með vetrarbrautum, sólkerfum, jarðhnöttum og lífi.

Notar hann tölvu eða píanó. Spilum við líka með honum, þeim. Trúlega.

Hvað á að gera.

Nú auðvitað á að opna fyrir flæðið frá náttúrunni, guði, mátti ég ekki segja það?

Auðvitað eigum við að hugsa gagnrýna hugsun, leita sannleikans,

hann gerir okkur frjálsa.

Þegar vindar náttúrunnar hafa blásið um sál og líkama er líklegt að við sjáum

að vandamálið vorum við sjálf.

Kerfið sem við byggjum upp, eftir endurmenntun, greiðir einstaklingnum,

fyrir starf eftir sinni getu, svo að hann geti keypt vörurnar.

Ég held að ég reyni að fara í endurmenntun áður en ég fer að skipuleggja,

en að vísu þarf barnið fæðuna strax.

Hvert er vandamálið Greina verkefnið. Jg 25.02.2009

Til athugunar,

"Drottinn elskar Ísraelsmenn, þótt þeir hneigist að öðrum guðum og þyki rúsínu kökur góðar,"

(Útlagt hér: Þótt við liggjum á hnjánum, starandi á verðbréfin, og vímu og girnda, sykur slefan,

renni í augu og eyru, og við reikum um sem drukknir, og skiljum ekkert.)

eða

Útleggst:

Drottinn elskar sitt fólk, þótt þeir hneigist að pappírshrúgu, verðbréfum,

velti sér upp úr girnda og vímu sykur slepju, sem sest í augu og eyru,

svo að þeir hvorki sjá eða heyra, og skilja ekki neitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband