Við eigum að fylla Kirkjurnar, munum að þegar við biðjum saman, þá margfaldast flæðið frá Miðjunni, og upplýsingin streymir í allar áttir og umvefur allt umhverfið, jörðina, alheiminn.

Hugleiðsla, heiður skólanum sem fór í hugleiðsluna, að tengja sig við baklandið,  alheiminn.

Jesú sagði, leitið sannleikans,  sannleikurinn mun gera ykkur frjáls, já úr fjósinu segjum við.

Af hverju heldur þú, að ég víxlarinn hafi tekið Jesú og Nikola Tesla að mestu út úr skólunum?

Það er vegna þess, að ég vil ekki að þið skiljið hvernig ég hef ykkur fyrir þræla.

Þú átt að gera verkin þín, en jafnframt átt þú að segja í huganum, Guð, eða Jesú, vilt þú hjálpa mér að skilja málefnin. Þá hefur þú hugann opinn fyrir þekkinguna frá kjarnanum, sem Nikola Tesla talar um.

Við höfum vanist á að nota orðin Guð, Heilagur Andi, Heilög Guðs Móðir um þessa miðju, sem við skiljum ekki.

En mundu að með þessu opnar þú flæði til fjölskyldunnar þinnar, sveitarfélagsins þíns og  landsins þíns, og allra stjórnvalda.

Og mundu, að Jesú og Nikola Tesla voru og eru vísindamenn, og voru að kenna okkur sannleika, til að gera okkur lífið bærilegt, og frelsa okkur frá púkunum, púkunum í okkur.

Við skulum varast að halda að við séum betri en aðrir, en reynum að leita að því sem virðist leiða okkur í góðar áttir.

Við eigum að fylla Kirkjurnar, munum að þegar við biðjum saman, þá margfaldast flæðið frá Miðjunni, og upplýsingin streymir í allar áttir og umvefur allt umhverfið, jörðina, alheiminn.

Mundu, að heimurinn er ANDLEGUR, segir Nikola Tesla. 

Egilsstaðir, 25.11.2019  Jónas Gunnlaugsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband