Hjálpum okkur sjálfum, Alþingi, Ríkisstjórninni,
seðlabanka, bönkunum,
og fyrst og síðast
verkalýðsfélögunum.
Allir hrópi á
hjálp - hjálp -hjálp.
Við allir hættum rangt að gera, hægara sagt en gert.
000
Tökum upp það besta úr peninga bókhaldi:
Sesar, Thomas Jefferson, Jackson, Taylor,
Zachary Taylor, James Buchanan,
Abraham Linkoln, James A. Garfield
og Kennedy.
000
(1876
Vegna óheiðarlegrar stjórnunar á peningamagni í Ameríku
er einn þriðji vinnuafls atvinnulaus og ólga magnast)
000
1891
Víxlararnir eyddu síðasta áratug aldarinnar í að skapa efnahagsuppgang sem síðan var fylgt eftir með niðursveiflum svo þeir gætu keypt upp þúsundir heimila og býla fyrir smápeninga.
Þeir bjuggu sig undir að láta efnahagslífið taka enn eina dýfuna í náinni framtíð og í makalausu minnisblaði sem ráð amerískra bankaeiganda sendi frá sér, og var birt í þingskjölum eftir rúma tvo áratugi, er eftirfarandi sett fram:
Þann 1. september 1894 munum við ekki endurnýja lán okkar undir neinum kringumstæðum.
Þann 1. september krefjumst við peninganna okkar. Við göngum að veðum og leysum fasteignir til okkar.
Við getum tekið tvo þriðju hluta af búgörðum vestan Mississippi-árinnar og þúsundir austan hennar líka, á okkar eigin verði [...] Síðan verða bændurnir leiguliðar eins og á Englandi ...
000 styttra að lesa þetta allt til enda en að lesa: slóð
Bankasaga Bandaríkjanna - Vafalaust sást mér yfir helstu atriði og líklega eru nokkur smáatriði röng en hér er hægt að fá að vita heilmikið um það hvað varð um peningana okkar, frjálsa landið okkar og heiminn. Allt á íslensku.
48 f.Kr.
Júlíus Sesar tók valdið til að slá mynt af víxlurunum og sló síðan sjálfur mynt öllum til hagsbóta. Með peningum úr þessum nýja peningabrunni stóð hann í miklum byggingaframkvæmdum og byggði stórkostleg opinber mannvirki. Með því að búa til nóg af peningum vann Sesar hylli hins almenna borgara.
En víxlararnir hötuðu hann fyrir þetta og þess vegna var Sesar myrtur. Strax eftir morðið varð peningaskortur í Róm, skattar hækkuðu og spilling óx. Að lokum var rómverskur peningaforði minnkaður um 90 prósent sem olli því að fólk glataði löndum sínum og heimilum.
000
1780
Thomas Jefferson var harður í sinni afstöðu: Ég trúi því í einlægni að bankastofnanir sem hafa leyfi til að gefa út peninga séu frelsinu hættulegri en herlið.
000
1834
Jackson fjarlægði allar eignir ríkisins úr Seinni banka Bandaríkjanna, banka Rothschild. Í desember 1834 lýsti Jackson forseti því yfir að skuldir þjóðarbúsins yrðu greiddar. Í næsta mánuði var gerð tilraun til að ráða Jackson af dögum.
Bankinn er að reyna að drepa mig en ég ætla að ganga af honum dauðum! Þið eruð nöðru- og þjófabæli. Ég ætla að svæla ykkur út og sem Guð er með mér mun ég tvístra ykkur.
000
1841
Taylor forseti hafnaði tvisvar frumvarpi til laga um að stofna nýjan þjóðarbanka.
000
1849
Zachary Taylor, 12. forseti Bandaríkjanna:
Ekkert land gæti dafnað án dugandi og sjálfstæðs dómskerfis og stöðugs gjaldmiðils.
Hugmyndin um þjóðarbanka er dauð og verður ekki endurlífguð á mínu kjörtímabili.
000
1857-1861
James Buchanan, 15. forseti Bandaríkjanna, talaði opinberlega gegn seðlabanka í einkaeign. Það var eitrað fyrir honum með arseniki en þrjátíu og átta manns, sem voru í sömu veislu, dóu.
000
1861
Lincoln sagði: Peningaöflin lifa á þjóðinni á friðartímum og sitja á svikráðum við hana í mótbyr. Bankaöflin eru valdameiri en einræðisherrar, ósvífnari en alræðisstjórnir og sjálfselskari en embættismannaveldi. Allir þeir sem efast um aðferðir þeirra eða varpa ljósi á glæpi þeirra eru úthrópaðir sem óvinir ríkisins. Ég á tvo stóra óvini: her sunnanmanna fyrir framan mig og bankamenn fyrir aftan mig. Af þeim tveimur þá er sá fyrir aftan mig minn stærsti fjandmaður.
000
- desember, 1865
NÝ þrettánda stjórnarskrárbreyting var staðfest og nam þar með úr gildi þáverandi fullgilda 13. stjórnarskrárbreytingu sem útilokaði ríkisborgararétt þess fólks sem sóru öðrum ríkjum eða leyndarfélögum hollustu.
000
1876
Vegna óheiðarlegrar stjórnunar á peningamagni í Ameríku er einn þriðji vinnuafls atvinnulaus og ólga magnast.
000
1881
James A. Garfield var settur í embætti forseta Bandaríkjanna 1881 og hann sagði: Sá sem stýrir peningamagninu í landi voru er fullkominn herra yfir öllum iðnaði og verslun.
000
1891
Víxlararnir eyddu síðasta áratug aldarinnar í að skapa efnahagsuppgang sem síðan var fylgt eftir með niðursveiflum svo þeir gætu keypt upp þúsundir heimila og býla fyrir smápeninga. Þeir bjuggu sig undir að láta efnahagslífið taka enn eina dýfuna í náinni framtíð og í makalausu minnisblaði sem ráð amerískra bankaeiganda sendi frá sér, og var birt í þingskjölum eftir rúma tvo áratugi, er eftirfarandi sett fram:
Þann 1. september 1894 munum við ekki endurnýja lán okkar undir neinum kringumstæðum. Þann 1. september krefjumst við peninganna okkar. Við göngum að veðum og leysum fasteignir til okkar. Við getum tekið tvo þriðju hluta af búgörðum vestan Mississippi-árinnar og þúsundir austan hennar líka, á okkar eigin verði [...] Síðan verða bændurnir leiguliðar eins og á Englandi ...
000
- júní, 1963
Kennedy forseti skrifar undir forsetaúrskurð, tilskipun 11110. Þessi tilskipun svo að segja svipti Seðlabankann því valdi sínu að lána Bandaríkjastjórn peninga með vöxtum. Kennedy forseti lýsti því yfir að Seðlabankinn, í einkaeign, yrði fljótt búinn að vera. Þessi tilskipun veitti fjármálaráðuneytinu leyfi til að gefa út silfurvottorð á móti silfri í ríkissjóðnum. Þessi tilskipun stendur enn þann dag í dag.
000 slóð
Bankasaga Bandaríkjanna - Vafalaust sást mér yfir helstu atriði og líklega eru nokkur smáatriði röng en hér er hægt að fá að vita heilmikið um það hvað varð um peningana okkar, frjálsa landið okkar og heiminn. Allt á íslensku.
Egilsstaðir, 22.02.2023 Jónas Gunnlaugsson
Úrslitastund fyrir óverðtryggð lán | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.