Munur á fjárlögum 2008 og 2009

 

Munur á fjárlögum 2008 og 2009 skoðað lauslega

http://www.herad.is/y04/1/2009-11-19-fjarlog11.htm

Þarna snarlækkuðu fjárlögin að verðmæti, frá 2008 til 2009,

lækkuðu um 40% í dollurum og evrum.

Þarna bendir allt til að verðtryggingunni hafi verið haldið niðri.

Ég reyndi að vekja ekki athyggli á því, nógu slæmt var ástandið.

Er í vinnslu

Reikna betur leiðrétta?

er formúlan rétt?

Nota hér vísitölu og gengi ca. 17.11.2009

Fjárlögin 2009 eru 96% af fjárlögunum 2008 í verðtryggðum krónum

Fjárlögin 2009 eru 59% af fjárlögunum 2008 í dollurum

Fjárlögin 2009 eru 59% af fjárlögunum 2008 í evrum

 


Veraldarbankinn

Veraldarbankinn

http://www.herad.is/y04/1/2009-11-29-veraldarbankareglurnar.htm 

Það er rétt að Íslendingar tóku þátt í pókerspili í alþjóða bankakerfinu.

Þetta pókerspil virðist vera algengt í bankastarfssemi,

sem var sett upp af Veraldarbankanum,

USA, EB og öðrum stærri þjóðum.

Bankarnir settu upp bótasjóði, til að leysa málið ef banki lenti í vandræðum

og í þeim reglum var tekið fram að ríki og sveitarfélög mættu ekki styðja við bankana,

það myndi skekkja samkeppni.

Vegna þessarar bankakreppu nú, voru settar nýjar reglur, vegna óviðráðanlegra aðstæðna.

Ekki virðist mögulegt að smá ríki geti uppfyllt þessar reglur.

Trúlega var smá minnimáttarkennd þegar, íslensku bankarnir voru settir á hausinn,

út í þessa nýríku einkabankaeigendur sem höfðu borist mjög á.

Að sjálfsögðu þurftu Íslendingar að fá hjálp, til að laga íslensku bankanna .

Íslendingar þurfa að læra til að koma á traustum bankarekstri.

Íslendingar þurfa aðstoð þeirra sem hafa meiri skilning á hagstjórn.

Minn skilningur er, að framleiða vörur eða þjónustu sem einhver þarfnast.

Að selja bréf fram og til baka framleiðir ekkert, en getur safnað í sjóð.

Ef sjóðurinn er notaður til að framleiða vörur og þjónustu,

orku framleiðslu og samgöngumannvirki,

er líklegt að gagn verði að.

Það myndi þá virka eins og tryggingasjóðirnir í Bandaríkjunum,

sem hjálpuðu til að gera Bandaríkin að stórveldi.

Nýríkir einstaklingar eru oft að reyna að láta bera á sér,

þá vantar reynslu og fyrirhyggju, og margur verður af aurum api.

Ekki fæddust allir fullkomnir.

Við Íslendingar ætlum að reyna að vinna okkur út úr þessum vanda,

og erum að sjálfsögðu tilbúnir í samstarf, til að hjálpa okkur sjálfum,

og öðrum þjóðum að bæta ástandið.

Egilsstaðir, 29.11.2009 Jónas Gunnlaugsson

http://www.herad.is/y04/1/

http://www.ismennt.is/not/jonasg/jg/jg06/

http://www.herad.is/

 


Miðbankinn

 http://www.herad.is/y04/1/2010-01-20-Midbankinn.htm

Miðbankinn

Miðbankinn skrifar tölu í tölvuna og lánar það svo til fólksins í veröldinni.

Fólkið byggir borgir, verksmiðjur, umferðarmannvirki og samgöngutæki,

nefndu það, allt sem nöfnum tjáir að nefna.

Allt er þetta skráð í skuld aðila í miðbankanum,

þótt hann hafi aðeins skrifað töluna.

Síðan kemur kreppa, vegna heimsku okkar,

eða hún er búin til af ásettu ráði.

Þá falla allar eignir í verði, og nú dugar veðið í eignunum,

ekki lengur fyrir skuldinni.

Þá tekur bankinn allt sem hinir ýmsu fyrri eigendur eiga upp í skuldina,

af þeim er ekki meira að hafa.

Nú selur hann eignirnar öðrum í hendur, þeim sem honum líkar við,

og er allt áfram að láni frá honum.

Hér er reynt að einfalda málið, við höfum minni einingar,

af miðbönkum.

 

Egilsstaðir, 20.01.2010

 


Bankastarfsmaður á bónus,

http://www.herad.is/y04/1/2010-02-15-Bankastarfsmadur-bonus.htm 

Bankastarfsmaður á bónus, sem er búinn að kaupa sér villu í Ölpunum,

aðra á Krít og þá þriðju í Karabíska hafinu.

Fjölskyldan og vinirnir dásama hann, en rekstrarkostnaðurinn er mikill.

Þetta þýðir það að strax í janúar á nýju ári, er hann búinn að færa 500 milljarða

af reikningum viðskiptavina yfir til eigenda, til að fá greiddann bónusinn sinn.

Því eyðslusamari sem hann er, verður hann betri starfsmaður

fyrir bankaeigandann.

Bankaeigandinn vill alltaf greiða starfmanni sínum bónus,

það er sama hvort gróði eða tap er á rekstrinum.

Eigandinn hefur ekki áhuga á að fá tapið til sín.

Ef bankinn fer á hausinn er betra að auka bónusinn.

Enginn kröfuhafi fer fram á að lækka kaup slitastjórnar,

slitastjórnin getur haft áhrif á ,

hvað hver kröfuhafi

fær í sinn hlut.

Að sjálfsögðu borga viðskiptavinirnir allt saman.

Banka eigandi er ekki það sama og hlutabréfa eigandi í banka,

eigandinn hefur ráðandi hlut.

Velt vöngum, 15.02.2010

jg

 


Bónus greiðslur til bankamanna.

http://www.herad.is/y04/1/2010-02-15-bankabonus.htm 

Bónus greiðslur til bankamanna.

Bankinn hefur 5000 miljarða til umsýslu.

Bankinn á 50 miljarða

Eigendur bankanna, segja við starfsfólkið að ef þeir hækki eignirnar,

upp í 500 miljarða, þá fái þeir 5 miljarða til að skipta á milli sín.

Ef einhver vill ekki fá margfalt kaup þá fer hann.

Starfsmaðurinn á aðeins að auka eignirnar.

Þegar eignir hafa lækkað í verði, og vextir náð öllum tekjum einstaklinga og fyrirtækja,

er byrjað að innheimta.

Það er að þeir einstaklingar og fyrirtæki sem skulda bankanum skulu greiða skuldina

að svo miklu leiti sem að þeir geta, þá er ekki meira af þeim að hafa.

Þá tekur bankinn eignirnar og selur til annarra.

Bónusinn er til að starfsfólkið missi ekki sjónar á því að ná öllum eignum af sem flestum,

þótt áhöld geti verið um hvernig skuldin er til komin.

Eignir sem áður tilheyrðu hinum ýmsu aðilum, enda sem eign bankaeigenda,

til að eign þeirra hækki úr 50 miljörðum í 500 miljarða.

Þá fá bankastarfsmennirnir sína 5 miljarða til að skipta sín í milli.

Þessir bónusar hafa í gegn um árin reynst vel, til að starfsmenn,

geri það sem þeim er ætlað.

Snjall starfsmaður getur fengið venjuleg laun allstaðar,

þú verður að borga honum vel,

til að hann vinni

FYRIR ÞIG.

Egilsstaðir, 15.02.2010 jg


ICESAVE SAMNINGAR

http://www.herad.is/y04/1/2010-02-22-icesavesamningar.htm

ICESAVE SAMNINGAR

Þegar samið er við óvana er mjög gáfulegt að setja fram gagntilboð með tiltölulega ósanngjörnum vöxtum.

Þá fara hinir óvönu að slást við þessa ósanngjörnu vexti, og svo þegar þeir hafa náð þeim niður finnst þeim óvönu,

að þeir hafi unnið mikinn sigur.

Þá gleymist að það var engin skuld.

Jg

Íslenskir samningamenn þurfa að hafa mat frá virtum erlendum matsmönnum um,

hver kostnaður Íslands er af því að Bretland felldi íslensku bankanna,

einn, tvo eða ef til vill þrjá.

Einnig kostnaðinn af að frysta allt íslenska bankakerfið og gjaldeyris forðann.

 

Þegar Lehman Brothers voru settir á hausinn, lentu íslensku bankarnir í vandræði með endurfjármögnun.

Þá höfðu þessir vinir okkar nægan tíma til að hjálpa okkur með þessa endurfjármögnun,

og þá aðra endurskipulagningu, en tími gafst ekki til þess, þegar Bretar réðust á okkar banka.

 

Þessi hugmynd að taka innlán í gegn um internetið var mun kostnaðarminni en að vera með mörg kostnaðarsöm útibú.

Var þetta ef til vill ástæðan til að okkar bankakerfi var knésett.

 

Vegna þessarar árásar á Íslensku bankana, rýrnuðu eignir þeirra.

Með öðrum orðum, þá voru það Bretar, sem eyðilögðu veðin fyrir innlánunum.

Eiga Íslendingar að fara að greiða það sem Bretar eyðilögðu.

 

Auðvitað viljum við hjálpa Evrópu við að leysa þessi vandamál.

Nú er betra að athuga vel um hvað málið snýst, áður en við skrifum undir ábyrgðir á tapi sem Bretar ollu.

 

Ekki réðist Evrópa á Bandaríkin til að láta Bandaríkjamenn með skatttekjum,

greiða töpuð innlán Evrópubúa í Lehman Brothers???

22.02.2010 JG


Árás Breta, ýmissa Evrópu þjóða og Evrópusambandsins á Ísland

http://www.herad.is/y04/1/2010-03-07-aras-breta.htm

Árás Breta, ýmissa Evrópu þjóða og Evrópusambandsins á Ísland

Með hryðjuverkalögunum tóku Bretar traustataki eigur tveggja af þremur stærstu bönkum Íslands í London

og einnig eignir Seðlabanka Íslands og gull og gjaldeyrisvarasjóð Íslands sem geymt var í London.

Þetta hafði þær afleiðingar að bankakerfið á Íslandi hrundi.

Þá stóðu íslendingar frammi fyrir því að þeir gætu ekki greitt fyrir mat, lyf , eldsneyti og aðrar nauðsynjar.

 

Þá komu Bretar og Evrópusambandið með minnismiða, (letter of understanding)

og sögðu að ef íslendingar skrifuðu undir að þeir væru reiðubúnir

að greiða fyrir mistök Evrópska bankakerfisins,

þá fengu þeir aðgang að eigin gjaldeyri

til að kaupa mat, lyf og nauðsynjar.

Íslendingar gáfust auðvitað strax upp, báðu um miskunn, og skrifuðu undir

að þeir skulduðu Bresku og Evrópsku handrukkurunum

geysilegar upphæðir.

Þá fengu íslendingar aðgang að eigin gjaldeyrisvarasjóði,

til að greiða fyrir matvæli.

Ekkert af þessum fjárhæðum voru skuldir Íslands,

samkvæmt Evrópulögum.

Fjármálaveldið var skelfingu lostið,

ef ríkistjórnir greiddu ekki skuldir einkageirans,

yrði að skipuleggja allt upp á nýtt.

Nokkur lönd í Evrópu hafa lánað einkageiranum í ýmsum löndum miklar fjárhæðir,

og eru nú orðin hrædd um að fá þá fjármuni ekki til baka.

 

Þá er reynt að búa til fordæmi á Íslandi, hvernig slík dæmi skuli leyst,

það er að láta alþýðu landanna borga með sköttum,

mistök og spilamennsku fjármagnseigenda.

Nú fellum við gamla rotna fjármálakerfið og skipuleggjum allt upp á nýtt.

Egilsstaðir, 07.03.2010 Jónas Gunnlaugsson


ICESAVE leikurinn

 http://www.herad.is/y04/1/2010-03-10-icesave-leikur-04.htm

ICESAVE leikurinn

Núna á öðru ári eftir hrunið er farið að skrifa um að bankarnir í Evrópu,

séu búnir að borga icesave, eftir þeim reglum sem við átti.

Þeir höfðu lagt peninga inn á reikning

og ávaxtað það sem verðbréf hjá sér.

Þegar hrunið verður, er gengið á stjórnmálamenn um hvað eigi að gera.

Þeir kalla á ráðgjafana og spyrja, hvað á ég að segja, gera.

Allir spinna þeir eitthvað sem aðilum fannst gáfulegt á þeim tíma.

Reynt er að kenna einhverjum um, leiða athyglina frá sér,

og þá kom icesave upp í hendurnar á stjórnendum.

Fjölmiðlar voru leiddir fram og til baka í umræðum um icesave,

og stjórnendur gátu látið líta svo út að þeir væru að leysa málin.

Að sjálfsögðu komu þeir ekki nálægt neinu sem skipti máli og skildu ekkert.

Við getum leitt hugann að lögum um banka, trúlega eru 10 eða 20 lög um banka,

og óteljandi reglugerðir.

Þegar lög eru samin fær einhver stofnun fyrirmæli um að semja lögin.

Ekki dugar að lögin séu þessar fjórar setningar sem um var talað.

Hver getur sent háann reikning fyrir það.

Það er búin til skýrsla og skýrslu skýrsla, lögin verða 5000 síður.

Þá er þetta eitthvað merkilegt og hægt að senda háann reikning

fyrir svona umfangs mikið verkefni.

Þegar stjórnmálamennirnir og ráðgjafar þeirra eiga að svara hvað eigi að gera strax eftir hrunið,

hafa þeir ekki hugmynd um hvað lögin og reglugerðirnar eru margar, til dæmis 10, 20 ,30.

Þá getum við ímyndað okkur til dæmis 10 sinnum 5000 eða 50.000 síður.

Þetta gæti verið mun meira.

Bankarnir, þó þeir muni trúlega eftir verðbréfunum sem átti að nota til að greiða vegna fallins banka,

eru ekki að flýta sér að mynna á reglurnar, þeir eru í miklum vandræðum vegna kreppunnar

og gott að ríkin greiði þetta sjálf.

Líklegt er að oft séu vandamál leyst eftir einhverjum lögum, og þá þegi stjórnsýslan um aðra lausn,

önnur lög sem eru henni síður að skapi.

Velt vöngum, Egilsstaðir, 16.03.2010 Jónas Gunnlaugsson

 

 

 


Ber er hver að baki, nema sér bróður eigi.

http://www.herad.is/y04/1/2010-03-16-Ber%20er%20hver%20a%f0%20baki.htm

Ber er hver að baki,

nema sér bróður eigi.

You'll always be exposed

without a good friend for your blind side.

 

Natural resources, energetic hands, innovative ideas

Náttúruauðæfi, vinnufúsar hendur og hugmyndir

*

Help Icelanders use their natural resources, innovative ideas and energetic hands

to develop a sustainable country which can contribute

to humanity and the world.

Help them to do this themselves.

*

Help Afghans use their natural resources, innovative ideas and energetic hands

to develop a sustainable country which can contribute

to humanity and the world.

Help them to do this themselves.

*

This is what President Barack Obama and Secretary of State Hillary Clinton

should proclaim to the world.

*

Hjálpið Íslendingum til að nýta náttúruauðæfi, vinnufúsar hendur

og hugmyndir til sjálfsbjargar, svo að þeir verði

nýtir þegnar jarðarinnar.

*

Hjálpið Afgönum til að nýta náttúruauðæfi, vinnufúsar hendur

og hugmyndir til sjálfsbjargar, svo að þeir verði

nýtir þegnar jarðarinnar.

*

Þetta er það sem forsetinn, herra Obama,

og utanríkisráðherrann, frú Clinton,

eiga að þruma yfir heiminn.

 

Egilsstaðir, 07.03.2010


Ég skrifa tölu í gjaldeyri í tölvuna mína

http://www.herad.is/y04/1/2010-05-20-Midbankinn.htm

Ég skrifa tölu í gjaldeyri í tölvuna mína og lána upphæðir um alla veröld.

Þeir byggja borgir, vegi, brýr, hafnir, samgöngutæki, verksmiðjur, orkuver

og nýta auðlindir og svona er hægt að halda áfram.

Þetta er allt í skuld hjá mér, "ég á þetta allt saman."

Fjármálakerfið byggir á að ég veiti þér lán, þú stritar og ég á allt saman. Gáfulegt?

Ef mig langar að auka völd mín, þá hætti ég að skrifa tölur og lána út.

Þá myndast ekki lengur lausafé.

Þá kemur kreppa, þá þurfa allir að selja, og þá lækkar verðið á eignunum.

Þá eiga fæstir veð fyrir skuldunum, og þá get ég tekið til dæmis orkulindirnar,

til mín upp í skuld.

Orkulindirnar gefa mikið vald.

Fólkið í löndunum þar sem ég er að leysa auðlindirnar til mín, sér ekki hvað ég er að gera.

Það hamast við að berja hvert annað fyrir að hafa orsakað kreppuna.

Eru íslendingar ekki að selja orkulindirnar núna?

Þú þarft leiðsögn, við þurfum leiðsögn, hvar skildi hún vera?

Egilsstaðir, 17.05.2010 Jónas Gunnlaugsson

.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggfærslur 28. febrúar 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband