17.2.2012 | 22:56
Mikið er gaman
Gaman
http://www.herad.is/y04/1/2012-02-11-2127-gaman.htm
Mikið er gaman.
Ég skrifaði tölurnar í tölvuna.
Þið byggðuð upp þjónustu, fasteignir og innviði þjóðfélagsins. .
Ég hirti allt, sem þið gerðuð.
Nú segi ég að þið skuldið mér allar tölurnar í tölvunni.
Ég segi að þær, tölurnar séu mun verðmætari en allar eignirnar.
Þú manst að 97% af tölunum, bjó ég til með viðskiptum
með verðbréf og gjaldeyri, sem framleiddi ekkert.
Þú trúir þessu öllu.
Hvernig getur staðið á því,
að þú trúir öllu þegar ég er að plata þig?
Ég hirti allt sem þú byggðir upp, við köllum það 3%.
Og nú segi ég þér að þú skuldir mér 3% og líka 97%
sem ég bjó til með verðbréfunum
og gjaldeyrisversluninni,
sem framleiddi ekkert.
Er virkilega ekki komin tími til að biðja Guð að hjálpa sér.
Egilsstaðir, 11.02.2012 Jónas Gunnlaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.