Þetta þurfa allir að lesa, um lífsloftið, sem spekingarnir kalla nú mengun. Mikið lífsloft, lætur plönturnar vaxa mikið hraðar, allt fyllist af gróðri, og þá súrefni. Menn og dýr fá þá nóg að borða af gróðrinum, og anda að sér súrefninu frá gróðrinum.

Allir auglýsi þessi blogg hjá Sveini.

Hér er Sveinn Rósinkrans Pálsson með mjög góðar færslur.

slóð

Jörðin er að grænka

slóð

Ekkert að óttast varðandi CO2

"Það er að mínu mati ekkert að óttast varðandi aukningu koltvísýrings í andrúmsloftinu. Það er vegna þess að áhrif CO2 á hitastig er á lógaritmískum skala, þannig að til að hækka hitastig jarðar um aðrar 0,7°C þarf aukningin á CO2 að vera tvöfallt meiri en á undan, og það er ekki að fara að gerast í bráð. Aftur á móti hafa skilyrði fyrir gróður batnað verulega um alla jörðina þannig að hún er nú grænni og vistlegri en áður. Stormar, flóð, þurrkar og óveður eru ekkert að aukast.

Þannig að umræðan um hinn bráða vanda er meira í ætt við trúarofstæki en vísindi.

Aftur á móti er jákvætt og mikilvægt að flytja orkunotkun yfir í endurnýjanlega orkugjafa, sérstaklega í þeim tilgangi að bæta umhverfið.

Prof. William Happer útskýrir þetta afar vel, sýnist mér:" Sveinn R. Pálsson

https://youtu.be/U-9UlF8hkhs

Klikka til að fá stærri myndir.

fordida

2019-10-07-greener

Egilsstaðir, 07.10.2019 Jónas Gunnlaugsson

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hvað ætlar þú að gera Jónas þegar hlýnunin hefur valdið bráðnun jöklanna á Himalaya með þeim afleiðingum sem það hefur á landbúnað og hundruð milljóna allslausra flóttamanna streyma frá svæðunum í kring til norðurs, þar á meðal til Íslands? Heldur þú að eitthvert þrugl um "lífsloft" hindri þann straum?

Þorsteinn Siglaugsson, 8.10.2019 kl. 11:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband