Nú sagði í RÚF fréttum að einhverjir hefðu dáið í Noregi úr Covid inflúensu og svona margir smitaðir.
Reynslan af þessum fréttum er að áður sögðu fréttirnar að allt væri á hvolfi í Svíþjóð vegna Covid, þá dauði og smit.
Svo kemur fyrrverandi forstjóri Landsspítalans, og núverandi forstjóri Karolinska í Svíþjóð, Björn Zoëga, í viðtal í Morgunblaðinu og segir að dauðsföll í Svíþjóð hafi verið eins og í slæmri inflúensu.
Hvernig getum við treyst fjölmiðli, fjölmiðlum sem hafa óviljandi? eða viljandi spurning?, blekkt okkur?
Getur það verið að við megum ekki nota lifin sem virka mjög vel gegn sjúkdómnum?
Við verðum að skoða þetta mjög vel.
Egilsstaðir, 22.11.2021 Jónas Gunnlaugsson
Athugasemdir
Áttu link á þetta viðtal Jónas?
Þorsteinn Siglaugsson, 23.11.2021 kl. 13:09
Innlent | Morgunblaðið | 16.8.2021 | 7:19 | Uppfært 7:34
Fimmfaldaði gjörgæsluna á Karólínska-sjúkrahúsinu
Björn segir m.a. að fullreynd sé sú nálgun að fjármagna sjúkrahúsrekstur með föstum fjárframlögum.
Rétt í þann mund sem kórónuveirufaraldurinn skall á Svíum af fullum þunga í fyrra tóku Björn Zoëga og samstarfsmenn hans á Karólínska-háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi á honum stóra sínum og fimmfölduðu fjölda gjörgæslurýma úr 38 í 180. Á elleftu stundu tókst honum að panta 50 nýjar öndunarvélar frá sænsku fyrirtæki, rétt í þann mund sem pantanir dreif að, úr öllum heimshornum.
Faraldurinn skall á, rúmu hálfu ári eftir að hann tók við spítalanum en þá var spítalinn í miklum fjárhagskröggum. Til þess að sporna við botnlausum hallarekstri sagði Björn upp 550 skrifstofumönnum og u.þ.b. 400 læknum og sjúkraliðum. Frá því að gripið var til þeirra aðgerða hefur sjúkrarúmum á spítalanum verið fjölgað um tæpan fjórðung og starfsánægja fólks er meiri. Starfsmannavelta á spítalanum hefur aldrei verið minni.
Björn er gestur í Dagmálum, streymisþætti sem aðgengilegur er áskrifendum Morgunblaðsins á mbl.is. Þar segir hann m.a. að fullreynd sé sú nálgun að fjármagna sjúkrahúsrekstur með föstum fjárframlögum. Tengja verði afköst og gæði þjónustunnar við það sem ríkissjóður reiðir af hendi. Við slíkar aðstæður hafi stofnanir tilhneigingu til þess að hugsa hlutina upp á nýtt, hagræða og einfalda rekstur í þágu sjúklinga og starfsfólks.
Alvarlegar afleiðingar
Hann segir enn ekki ljóst hver dómurinn yfir aðgerðum sænskra yfirvalda vegna kórónuveirunnar verði þegar allt verður gert upp. Dánartíðni þar í landi hafi ekki reynst meiri en í skæðum inflúensuárum. Þó séu nú að koma fram alvarlegar afleiðingar af faraldrinum. Mikið sé um nýgengi krabbameina sem séu í stórauknum mæli langt gengin. Það skýrist sennilega af því að skimunum var hætt meðan faraldurinn stóð sem hæst og að fólk hefur dregið það að leita sér lækninga vegna ástandsins.
Viðtalið við Björn er opið öllum áskrifendum Morgunblaðsins. Það er aðgengilegt hér. *****
Jónas Gunnlaugsson, 23.11.2021 kl. 21:33
Linkur:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/08/16/fimmfaldadi_gjorgaesluna_a_karolinska/
Jónas Gunnlaugsson, 23.11.2021 kl. 21:35
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/08/16/fimmfaldadi_gjorgaesluna_a_karolinska/
Alvarlegar afleiðingar
Hann segir enn ekki ljóst hver dómurinn yfir aðgerðum sænskra yfirvalda vegna kórónuveirunnar verði þegar allt verður gert upp.
Dánartíðni þar í landi hafi ekki reynst meiri en í skæðum inflúensuárum.
Þó séu nú að koma fram alvarlegar afleiðingar af faraldrinum. Mikið sé um nýgengi krabbameina sem séu í stórauknum mæli langt gengin. Það skýrist sennilega af því að skimunum var hætt meðan faraldurinn stóð sem hæst og að fólk hefur dregið það að leita sér lækninga vegna ástandsins.
Viðtalið við Björn er opið öllum áskrifendum Morgunblaðsins. Það er aðgengilegt hér.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/08/16/fimmfaldadi_gjorgaesluna_a_karolinska/
Jónas Gunnlaugsson, 23.11.2021 kl. 21:42
Viðtalið við Björn er opið öllum áskrifendum Morgunblaðsins.
********* Það er aðgengilegt hér. *********
hér.
Jónas Gunnlaugsson, 23.11.2021 kl. 21:47
Viðtalið við Björn er opið öllum áskrifendum Morgunblaðsins.
Það er aðgengilegt hér.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/08/16/fimmfaldadi_gjorgaesluna_a_karolinska/
Prenta út og geima vel.
Ef þú finnur myndbandið undir hér. reyndu þá að geima það.
Jónas Gunnlaugsson, 23.11.2021 kl. 22:22
Það á að geyma svona grein og myndband úti um allt, það er svo auðvelt að láta greinina og myndbandið hverfa.
Þá verða lygarnar sannleikurinn.
Reyndar er nóg að hamra stanslaust á lyginni í fjölmiðlunum mínum, þá trúa allir því.
Er hægt að finna allt sem er á internetinu?
Hef einnig heyrt að allt sem er á netinu, verði þar áfram.
Við spyrjum þá sem vita.
Hér áður gat ég látið forritið leita að texta á heimasíðunni minni og breytt honum eða eytt.
Alstaðar þar sem þessi slóð var gat ég sett aðra í staðinn, tölvan leitaði sjálf og breytti um texta.
Finndu þetta og breyttu því í þetta.
Forritin eru löngu tínd þegar sett eru inn ný stýrikerfi.
Nútíma forrit eru trúlega dýrari og þá stýrikerfunum breytt til að þau gömlu virki ekki í þeim nýju.
Ég á ekki að minna þá á sem skálda veraldarsöguna.
Jónas Gunnlaugsson, 24.11.2021 kl. 00:57
Jónas Gunnlaugsson, 24.11.2021 kl. 01:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.